Ef netið er hægt getur ástæðan verið veik WiFi tenging, of mörg tæki í notkun, staðsetning á eero, truflanir eða vandamál með sjálfa internettenginguna. Hér eru einföld skref sem gott er að prófa fyrst.
1. Athugaðu hvort vandamálið sé alls staðar eða bara á einu tæki
Byrjaðu á að skoða hvort hægagangurinn komi fram á öllum tækjum eða bara einu.
Ef aðeins eitt tæki er hægt:
- Prófaðu að endurræsa tækið.
- Athugaðu hvort tækið sé langt frá næsta eero.
- Prófaðu að færa tækið nær eero.
- Athugaðu hvort tækið sé að hlaða niður, uppfæra sig eða keyra mörg forrit í einu.
Ef öll tæki eru hæg:
- Farðu í næstu skref hér að neðan.
- Þá gæti vandinn tengst WiFi dreifingu, álagi á netinu eða internettengingunni sjálfri
2. Keyrðu hraðapróf í eero appinu
Hraðaprófið í eero appinu sýnir hvaða hraða eero netið fær frá internetinu.
Svona gerirðu:
- Opnaðu eero appið.
- Farðu í Internet eða Activity.
- Veldu Speed test.
- Ýttu á Run speed test ef þú vilt keyra nýtt próf.
- Skoðaðu niðurstöðurnar.
Hraðaprófið sýnir yfirleitt:
Download
Hraðinn sem þú notar þegar þú vafrar, streymir, horfir á myndbönd eða hleður niður efni.
Upload
Hraðinn sem þú notar þegar þú sendir gögn frá þér, til dæmis í myndsímtölum, þegar þú sendir skrár eða notar skýjaþjónustur.
Ef hraðaprófið er mun lægra en internetáskriftin þín segir til um getur verið gott að endurræsa netið og athuga hvort ljósleiðarabox eða tenging sé í lagi.
3. Endurræstu eero netið
Endurræsing getur lagað tímabundin vandamál, til dæmis ef netið er hægt, tæki detta út eða tengingin hegðar sér óeðlilega.
Svona endurræsir þú netið í eero appinu:
- Opnaðu eero appið.
- Farðu í Settings.
- Opnaðu Advanced settings.
- Veldu Restart network.
- Staðfestu endurræsingu.
Netið verður óvirkt í stutta stund á meðan eero tækin endurræsa sig.
4. Athugaðu staðsetningu á eero
WiFi hraði getur lækkað ef eero er á óheppilegum stað.
Best er að eero sé:
- á opnum stað
- ekki inni í skáp
- ekki á gólfi
- ekki bak við sjónvarp eða stór raftæki
- ekki of langt frá öðrum eero tækjum
- ekki innan um þykka veggi, steypu eða miklum málmi
Ef þú ert með fleiri en eitt eero tæki skaltu hafa þau þannig að þau nái góðu sambandi sín á milli. Ef þau eru of langt frá hvort öðru getur hraðinn lækkað.
5. Skoðaðu hvað mörg tæki eru tengd
Netið getur orðið hægara ef mörg tæki eru að nota mikla bandbreidd á sama tíma.
Dæmi um hluti sem geta hægt á netinu:
- 4K streymi
- tölvuleikir
- stór niðurhöl
- myndsímtöl
- skýjaafritun
- mörg snjalltæki
- gestir á WiFi netinu
Í eero appinu getur þú skoðað tengd tæki og séð hvaða tæki eru online.
Svona skoðar þú tæki:
- Opnaðu eero appið.
- Farðu í Devices.
- Skoðaðu hvaða tæki eru tengd.
- Athugaðu hvort eitthvað tæki sé að nota óvenju mikið net.
Ef mörg tæki eru í notkun á sama tíma getur hjálpað að stöðva stór niðurhöl eða færa mikilvæg tæki nær eero.
6. Prófaðu að tengja mikilvægt tæki með snúru
Ef þú ert að nota tölvu, leikjatölvu eða sjónvarp þar sem hraði og stöðugleiki skiptir miklu máli getur snúrutenging hjálpað.
Þetta á sérstaklega við fyrir:
- leikjatölvur
- heimaskrifstofu
- sjónvarp eða streymisbox
- tæki sem eru langt frá eero
Tengdu tækið með Ethernet snúru við eero ef mögulegt er.
7. Athugaðu hvort WiFi dreifingin sé næg
Ef netið er aðeins hægt í ákveðnu herbergi eða hluta heimilisins getur vandinn verið WiFi dreifing.
Algeng merki um veik WiFi dreifingu:
- netið er gott nálægt eero en hægt lengra frá
- myndsímtöl hökta í ákveðnu herbergi
- streymi stoppar á ákveðnum stað
- tæki detta stundum af WiFi
- hraðinn er misjafn eftir því hvar þú ert á heimilinu
Þá getur hjálpað að færa eero tæki, bæta við eero einingu eða nota snúrutengingu þar sem það hentar.
8. Ef netið er enn hægt
Ef þú hefur prófað skrefin hér að ofan og netið er enn hægt skaltu hafa samband við Nova.
Gott er að hafa þessar upplýsingar tilbúnar:
- Er netið hægt alls staðar eða bara á ákveðnum stað?
- Eru öll tæki hæg eða bara eitt tæki?
- Hver er niðurstaðan úr hraðaprófi í eero appinu?
- Hvenær byrjaði vandamálið?
- Hafa ný tæki bæst við netið nýlega?
- Hefur eero eða ljósleiðarabox verið fært til?
- Lýsir eero tækið hvítu eða rauðu ljósi?
- Hefur eitthvað breyst á heimilinu? (Framkvæmdir, tilfærsla húsgagna e.t.c)
Spurt og svarað
Af hverju fæ ég ekki alltaf sama hraða á WiFi og ég sé í internetáskriftinni minni?
WiFi hraði getur verið lægri en hraðinn sem kemur inn á heimilið. Staðsetning, fjarlægð frá eero, veggir, truflanir og fjöldi tækja geta haft áhrif.
Af hverju er netið hægt í einu herbergi en gott annars staðar?
Það bendir oft til veikrar WiFi dreifingar á þeim stað. Prófaðu að færa eero nær, færa tækið nær eero eða bæta við eero einingu ef þörf er á.
Geta mörg tengd tæki hægt á netinu?
Já. Ef mörg tæki eru að streyma, spila, hlaða niður eða taka myndsímtöl á sama tíma getur það haft áhrif á hraðann.
Hjálpar að endurræsa eero?
Já, stundum. Endurræsing getur lagað tímabundin vandamál og er gott fyrsta skref ef netið er hægt eða óstöðugt.
Hvenær ætti ég að hafa samband við Nova?
Hafðu samband ef hraðaprófið í eero appinu er ítrekað mun lægra en þú átt von á, ef öll tæki eru hæg eða ef eero sýnir rautt ljós.