Ef eitt tæki tengist ekki WiFi, en önnur tæki virka eðlilega, er vandinn líklega tengdur tækinu sjálfu, staðsetningu þess eða því hvernig það tengist WiFi.
Þetta getur oft gerst með smart home tæki, myndavélar, prentara, dyrabjöllur og eldri síma eða spjaldtölvur. Sum þessara tækja styðja aðeins 2.4 GHz WiFi.
Athugaðu fyrst
Áður en þú ferð í flóknari skref skaltu prófa þetta:
- Gakktu úr skugga um að tækið sé nálægt eero á meðan þú tengir það í fyrsta sinn.
- Athugaðu að þú sért að velja rétt WiFi nafn.
- Sláðu WiFi lykilorðið inn aftur og passaðu hástafi, lágstafi og sértákn.
- Endurræstu tækið sem þú ert að reyna að tengja.
- Slökktu og kveiktu aftur á WiFi á tækinu.
Ef tækið tengist enn ekki gæti það aðeins stutt 2.4 GHz.
Tæki sem styðja bara 2.4 GHz
Sum tæki geta aðeins tengst 2.4 GHz WiFi. Þetta á oft við um:
- snjalltæki
- öryggismyndavélar
- prentara
- dyrabjöllur
- eldri síma eða spjaldtölvur
- sum IoT tæki
eero notar venjulega sömu WiFi netheiti fyrir allar tíðnir og stýrir tengingum sjálfkrafa. Í flestum tilfellum virkar það vel, en sum 2.4 GHz tæki þurfa smá aðstoð við fyrstu tengingu.
Svona tengir þú 2.4 GHz tæki
- Opnaðu eero appið.
- Farðu í Settings.
- Veldu Troubleshooting.
- Veldu My device won’t connect.
- Veldu My device is 2.4 GHz only.
- Veldu Pause 5 GHz and 6 GHz.
- Prófaðu að tengja tækið aftur við WiFi.
Þetta setur 5 GHz og 6 GHz tímabundið í pásu svo tækið geti tengst 2.4 GHz.
Þegar tækið er komið inn á netið notar eero aftur allar tíðnir venjulega.
Ef tækið tengist en netið er hægt
Ef tækið tengist WiFi en virkar hægt skaltu prófa:
- Færa tækið nær eero.
- Forðast að hafa tækið á bak við þykka veggi, málmhluti eða stór húsgögn.
- Færa tækið frá örbylgjuofnum, þráðlausum símtækjum, barnapíum eða öðrum búnaði sem getur truflað WiFi.
- Endurræsa tækið.
- Slökkva og kveikja aftur á WiFi á tækinu.
Ef tækið er fast á einum stað, til dæmis prentari eða myndavél, getur hjálpað að færa eero eða bæta við eero einingu nær tækinu.
Ef ekkert virkar
Ef tækið tengist enn ekki WiFi:
- Athugaðu hvort tækið styðji núverandi WiFi öryggisstillingar.
- Prófaðu að uppfæra hugbúnað tækisins ef það er hægt.
- Endurræstu eero netið í eero appinu.
- Prófaðu að fjarlægja vistað WiFi net úr tækinu og tengja það aftur.
Ef vandinn er enn til staðar skaltu hafa samband við Nova þjónustuver og láta vita hvaða tæki er að tengjast ekki, hvort önnur tæki virki og hvort tækið styðji aðeins 2.4 GHz.
Algengar spurningar
Af hverju tengist tækið ekki ef önnur tæki virka?
Þá er líklegra að vandinn sé tengdur tækinu sjálfu, WiFi lykilorði, staðsetningu eða því að tækið styðji aðeins 2.4 GHz.
Slekkur þetta á WiFi hjá mér?
Nei. Þegar þú velur Pause 5 GHz and 6 GHz er það aðeins tímabundið. Þetta er gert til að hjálpa 2.4 GHz tækjum að tengjast.
Þarf ég að breyta WiFi nafninu mínu?
Nei, yfirleitt ekki. eero notar eitt WiFi nafn og sér sjálfkrafa um tíðnirnar.
Get ég notað 2.4 GHz tæki á eero?
Já, í flestum tilfellum. Sum tæki þurfa bara að tengjast á meðan 5 GHz og 6 GHz eru tímabundið sett í pásu.