Ef WiFi virkar vel á sumum stöðum en illa á öðrum, er líklegt að merkið nái ekki nógu vel á þann stað. Þetta getur gerst ef langt er í næsta eero, ef veggir eða hæðir eru á milli, eða ef tækið er í rými þar sem WiFi merki á erfitt með að komast í gegn.
Algeng dæmi eru bílskúr, kjallari, herbergi lengst frá routernum, útihús eða staðir þar sem margir veggir eru á milli.
Prófaðu þetta fyrst
1. Athugaðu hvort vandamálið sé bara á einum stað
Prófaðu að nota sama tæki á öðrum stað í húsinu.
Ef netið virkar vel nálægt eero en illa á ákveðnum stað, er vandamálið líklega tengt WiFi dreifingu eða staðsetningu.
Ef netið er hægt eða dettur út alls staðar, gæti vandamálið frekar verið tengt nettengingunni sjálfri.
2. Færðu tækið nær eero
Ef þú ert með fartölvu, síma eða spjaldtölvu skaltu prófa að færa tækið nær næsta eero.
Ef tengingin lagast, bendir það til þess að WiFi merkið sé of veikt á staðnum þar sem vandamálið kemur upp.
3. Endurtengdu tækið við WiFi
Stundum getur tæki verið tengt við eero sem er ekki næstur því.
Prófaðu að:
- Slökkva á WiFi á tækinu.
- Bíða í nokkrar sekúndur.
- Kveikja aftur á WiFi.
- Prófa netið aftur á sama stað.
Þetta getur hjálpað tækinu að tengjast næsta eða besta eero á heimilinu.
Athugaðu staðsetningu eero
Settu eero á opinn stað
eero virkar best þegar það er á opnum stað, til dæmis á borði, hillu eða skenk.
Forðastu að setja eero:
- inni í skáp
- bak við sjónvarp
- á gólfið
- nálægt stórum raftækjum
- nálægt ofni eða í beinu sólarljósi
- á bak við þykka veggi eða stór húsgögn
Hafðu eero ekki of langt frá næsta eero
Ef þú ert með fleiri en eitt eero tæki þurfa þau að geta talað vel saman.
Ef auka eero er sett of langt frá aðal eero getur það fengið veikt merki og dreift veikri tengingu áfram.
Gott ráð er að setja auka eero mitt á milli aðal eero og staðarins þar sem WiFi virkar illa, ekki alveg inni á dauða svæðinu.
Hlutir sem geta truflað WiFi
WiFi merki getur veikst eða truflast af:
- steyptum veggjum
- múrsteinum
- gólfum á milli hæða
- stórum speglum
- málmi
- gólfhita eða þéttum byggingarefnum
- örbylgjuofnum
- þráðlausum símum
- mörgum WiFi netum í fjölbýli
Í sumum tilfellum þarf að færa eero aðeins til, jafnvel bara um nokkra metra, til að fá betra samband.
Ef vandamálið er í kjallara, bílskúr eða ysta herbergi
Þessi rými eru oft erfiðari fyrir WiFi vegna fjarlægðar, veggja eða byggingarefna.
Prófaðu að:
- Setja eero nær rýminu þar sem vandamálið er.
- Setja auka eero á milli aðal eero og vandamálasvæðis.
- Forðast að setja eero alveg við gólf eða inni í lokuðu rými.
- Prófa tækið aftur eftir að eero hefur verið fært.
Ef WiFi þarf að virka mjög vel á þessum stað, til dæmis fyrir heimaskrifstofu, leikjatölvu eða sjónvarp, gæti þurft auka eero til að bæta dreifinguna.
Endurræstu netið ef vandamálið heldur áfram
Ef staðsetningin virðist í lagi en WiFi er enn óstöðugt getur verið gott að endurræsa netið í eero appinu.
Svona gerirðu:
- Opnaðu eero appið.
- Farðu í Settings.
- Veldu Advanced settings.
- Veldu Restart network.
- Bíddu þar til netið kemur aftur online.
Athugaðu að netið dettur tímabundið út á meðan endurræsing fer fram.
Hvenær þarf að bæta við eero?
Það getur verið góð hugmynd að bæta við eero ef:
- WiFi virkar illa á sama stað þrátt fyrir að hafa fært núverandi eero
- heimilið er á fleiri en einni hæð
- veggir eru þykkir eða úr steypu
- vandamálið er í bílskúr, kjallara eða ysta herbergi
- mörg tæki eru í notkun á sama tíma
- þú þarft stöðugt net fyrir vinnu, streymi eða leikjatölvu á staðnum
eero er mesh kerfi, sem þýðir að fleiri eero tæki geta unnið saman til að dreifa WiFi betur um heimilið.
Algengar spurningar
Af hverju virkar WiFi vel í stofunni en illa í einu herbergi?
Líklega er WiFi merkið veikara þar. Það getur verið vegna fjarlægðar frá eero, veggja, hæða eða annarra hindrana.
Hjálpar að færa eero?
Já, oft getur það hjálpað mikið. eero ætti helst að vera á opnum stað og ekki falið inni í skáp, bak við sjónvarp eða nálægt stórum raftækjum.
Á ég að setja auka eero beint á staðinn þar sem WiFi virkar illa?
Ekki alltaf. Oft er betra að setja auka eero mitt á milli aðal eero og vandamálasvæðisins. Þá fær það betra samband og getur dreift merkinu áfram.
Getur eitt tæki verið vandamálið?
Já. Ef aðeins eitt tæki virkar illa skaltu prófa að slökkva og kveikja á WiFi á tækinu, endurræsa tækið og prófa það á öðrum stað.
Hvenær á ég að hafa samband við Nova?
Hafðu samband við Nova ef WiFi virkar illa á sama stað þrátt fyrir að þú hafir prófað að færa eero, endurtengja tækið og endurræsa netið. Við getum hjálpað að skoða hvort staðsetning, fjöldi eero tækja eða annað sé að hafa áhrif.