Greinar um þetta efni

eero fyrir fyrirtæki

Hvað er eero for business?

eero for business er WiFi lausn fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem vilja einfalt, stöðugt og öflugt þráðlaust net.

eero notar mesh WiFi, þar sem fleiri en ein eero eining geta unnið saman til að dreifa WiFi betur um rýmið. Þetta hentar vel fyrir skrifstofur, verslanir, móttökurými, minni lagera, vinnustofur og önnur fyrirtæki þar sem netið þarf að virka vel á fleiri en einum stað.

eero for business er viðbót við hefðbundið eero net. Með viðbótinni fær fyrirtækið fleiri möguleika til að stjórna netinu, aðskilja mismunandi tegundir tækja og bjóða gestum upp á sérsniðna WiFi upplifun.

Fyrir hverja hentar eero for business?

eero for business getur hentað fyrirtækjum sem:

  • þurfa betri WiFi dreifingu á vinnustaðnum
  • eru með mörg tæki tengd, til dæmis fartölvur, síma, posa, prentara, myndavélar eða snjalltæki
  • vilja einfalt net sem auðvelt er að setja upp og stjórna
  • vilja bjóða viðskiptavinum eða gestum upp á WiFi
  • vilja aðskilja starfsmannanet, gestanet og mikilvæg fyrirtækjatæki
  • eru með starfsfólk sem notar myndsímtöl, skýjaþjónustur eða vinnukerfi yfir WiFi
  • vilja meiri stjórn á því hvernig gestir nota netið

Helstu kostir

Betri WiFi dreifing

Með mesh WiFi geta fleiri eero einingar unnið saman til að dreifa merkinu betur um rýmið. Þetta getur minnkað dauð svæði og hjálpað tækjum að halda stöðugri tengingu.

Einfalt í notkun

eero appið leiðir þig í gegnum uppsetningu og gerir þér kleift að sjá stöðu netsins, tengd tæki og helstu stillingar.

Sér net fyrir mismunandi notkun

Með eero for business er hægt að búa til allt að fjögur aðskilin WiFi net, eða SSID. SSID er einfaldlega nafnið á WiFi netinu sem birtist þegar tæki tengjast neti.

Algeng uppsetning er:

Main

Aðalnet fyrir starfsfólk og almenna fyrirtækjanotkun.

Guest

Gestanet fyrir viðskiptavini, gesti eða verktaka. Gestir fá aðeins aðgang að internetinu og hafa ekki aðgang að tækjum á innra neti fyrirtækisins.

Business

Net fyrir mikilvæg fyrirtækjatæki, til dæmis posa, prentara, öryggiskerfi eða annan búnað sem þarf stöðuga tengingu.

IoT

Net fyrir snjalltæki og annan búnað sem er alltaf tengdur, til dæmis hitastýringar, dyralása, myndavélar eða skynjara.

Sérsniðið gestanet

eero for business býður upp á fleiri möguleika fyrir gestanet en hefðbundið eero net.

Þú getur til dæmis:

  • breytt nafni gestanetsins
  • haft gestanetið opið eða varið með lykilorði
  • sett upp innskráningarsíðu fyrir gesti
  • bætt við merki fyrirtækisins á innskráningarsíðu
  • bætt við texta, skilmálum eða notkunarreglum
  • valið ljósan eða dökkan útlitsmáta
  • ákveðið hversu lengi hver gestur fær aðgang að netinu

Þetta hentar vel fyrir fyrirtæki sem vilja bjóða viðskiptavinum WiFi en samt halda betri stjórn á notkuninni.

Takmarkanir fyrir gesti

Með eero for business er hægt að setja takmarkanir á gestanetið svo gestir noti ekki of stóran hluta af tengingunni.

Það er til dæmis hægt að takmarka:

  • hversu mikið af heildarbandvídd gestir mega nota
  • hversu lengi gestir eru tengdir í einu
  • hvort gestir þurfi að samþykkja skilmála áður en þeir tengjast

Þetta getur hjálpað til við að tryggja að starfsfólk og mikilvæg fyrirtækjatæki fái áfram góða tengingu, jafnvel þegar margir gestir eru tengdir.

Aðskilnaður á tækjum

Einn helsti kosturinn við eero for business er að hægt er að halda mismunandi tækjum aðskildum.

Til dæmis getur fyrirtæki haft:

  • starfsfólk á Main neti
  • viðskiptavini á Guest neti
  • posa og prentara á Business neti
  • snjalltæki á IoT neti

Þetta gerir netið snyrtilegra, öruggara og auðveldara í rekstri.

 

Algengar spurningar

Hver er munurinn á venjulegu eero og eero for business?

Venjulegt eero net hentar vel fyrir einfalt WiFi. eero for business bætir við fleiri fyrirtækjatengdum möguleikum, til dæmis fleiri WiFi netum, sérsniðnu gestaneti, innskráningarsíðu fyrir gesti, takmörkunum á gestanotkun og betri aðskilnaði á tækjum.

Get ég verið með fleiri en eitt WiFi net?

Já. Með eero for business er hægt að nota allt að fjögur net: Main, Guest, Business og IoT t.d.

Get ég sett upp gestanet með skilmálum?

Já. Gestanetið getur verið með captive portal, sem er innskráningarsíða þar sem gestir geta séð upplýsingar, samþykkt skilmála og fengið aðgang að netinu.

Get ég takmarkað hversu mikið gestir nota netið?

Já. Það er hægt að setja takmarkanir á bandvídd og lengd hverrar tengingar á gestaneti.

Get ég sett posa, prentara og öryggiskerfi á sér net?

Já. Það er hægt að nota Business netið fyrir mikilvæg fyrirtækjatæki og halda þeim aðskildum frá gestaneti.

Er eero for business fyrir stór fyrirtækjanet?

eero for business hentar best fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem vilja einfalt og öflugt WiFi. Fyrir stærri eða mjög flókin net, til dæmis þar sem þarf sérhæfða netstýringu, mörg sérsniðin VLAN eða flókið aðgangskerfi, gæti þurft sérhæfðari fyrirtækjalausn.

Getur Nova aðstoðað við uppsetningu eða stillingar?

Já, Nova getur aðstoðað með ráðgjöf og uppsetningu.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg