Greinar um þetta efni

Huawei B818-263 4.5G ráter

Huawei B818-263 er öflugur og áreiðanlegur 4.5G ráter sem býður upp á hraða og stöðuga nettengingu á heimilinu eða á skrifstofunni.

Lýsing

Huawei B818-263 ráterinn styður 4.5G LTE tækni sem veitir öfluga og hraða nettengingu, sérstaklega á svæðum þar sem ljósleiðari er ekki í boði. Þessi ráter býður framúrskarandi afköst í gegnum farsímanet.

Lýsing

Huawei B818-263 ráterinn styður 4.5G LTE tækni sem veitir öfluga og hraða nettengingu, sérstaklega á svæðum þar sem ljósleiðari er ekki í boði. Þessi ráter býður framúrskarandi afköst í gegnum farsímanet.

Helstu eiginleikar

  • Styður 4.5G LTE

  • Wi-Fi Dual-band 2.4GHz og 5GHz

  • Styður allt að 64 samtímis tæki

  • 2 LAN tengi (RJ45)

  • Einfalt viðmót fyrir stillingar og eftirlit

Tæknilegar upplýsingar

  • Mál: 103 mm x 103 mm x 225 mm

  • Þyngd: Um 700g

  • Wi-Fi staðlar: IEEE 802.11a/b/g/n/ac

  • Tengi: 2 RJ45 Ethernet tengi, 1 USB tengi, SIM kort rauf

Viðhald og ráð

  • Hafðu ráterinn á opnu svæði og forðastu hindranir til að hámarka Wi-Fi merkið.

  • Endurræstu tækið reglulega til að tryggja hámarksafköst.

 

 

router.jfif

 

 

Ljós:

Power ljós​
Kveikt: Kveikt á ráter.
Slökkt: Slökkt á ráter.

Status ljós
Slökkt: Engin internet tenging.
Kveikt: Nettenging virk.

WIFI ljós
Kveikt: Kveikt á þráðlausu neti.
Slökkt: Slökkt á þráðlausu neti (þarf að LAN tengja ráter við tölvu til að kveikja á Wifi inná stillingarsíðu).

LAN ljós
Kveikt: Eitt eða fleiri Ethernet/LAN tengi eru í notkun.
Blikkandi: Ethernet/LAN tenging í gangi.
Slökkt: Ekkert tæki Ethernet/LAN tengt við ráter.

Signal ljós
Kveikt: Þrjú signal ljós eru á boxinu. Því fleiri sem eru kveikt, því betra signal er boxið að fá.
Slökkt: Router ekki að ná signali. Athuga Mode ljós.

Mode ljós
Stöðugt ljósblátt ljós: Tengt við LTE/4G.
Stöðugt dökkblátt ljós: Tengt við 3G
Stöðugt gult ljós: Tengt við 2G 
Stöðugt grænt ljós: Net tengt í gegnum WAN port.
Stöðugt rautt ljós: Óvirkt simkort eða simkort snýr ekki rétt. Er APN stillingin rétt í ráter?

 

Stillingar:

Til þess að komast inná stillingarsíðu rátersins er farið inn á 192.168.8.1 og lykilorðið er það sama og WiFi lykilorðið nema að því hafi verið breytt. Þessar upplýsingar má finna á botni rátersins. 

innskr_.JPG

 

Í "Network Settings" er svo hægt að slökkva og kveikja á Mobile data, Data roaming og breyta APN stillingum.

APN.JPG

APN fyrir netnúmer er internet.nova.is

APN2.JPG

 

Næsti flipi er "Wi-Fi Settings" þar sem hægt er að kveikja á 2,4 eða 5Ghz tíðnunum, ásamt því að breyta nafninu og lykilorðinu á WiFi-inu. 

_2222.JPG

 

Það er sjálfkrafa kveikt á WPS í þessari týpu af ráter og er því nóg að ýta á WPS takkann og því tæki sem á að tengja hann við.

 

Gott er að endurræsa búnaðinn og reyna núna að tengjast.

Átt þú ennþá í vandræðum með að tengjast?
Heyrðu þá endilega í okkur á netspjallinu á nova.is og við græjum þetta saman.

Var þessi grein gagnleg?
7 af 14 fannst þessi grein gagnleg