Greinar um þetta efni

Hvað er kastari?

Screenshot_2022-01-25_at_13.05.31.png

Kastari frá Nova er nettur og öflugur Wi-Fi búnaður sem eykur þráðlausa nettengingu á heimilum. Hann hentar sérstaklega vel í stærri hús eða rými þar sem veggir eða önnur hindrun veikir Wi-Fi merkið.

Hvernig virkar kastari?

Kastarinn tengist við aðalráterinn á tvo vegu:

  • Með netsnúru (Ethernet): Gefur hraðasta og stöðugasta sambandið. Tengdu einfaldlega netsnúru milli ráters og kastara.

  • Þráðlaust (Wi-Fi): Þægileg lausn ef ekki er hægt að nota netsnúru. Hafðu kastarann í innan við 10 metra fjarlægð frá ráternum, helst án þykkra eða burðarveggja á milli.

Helstu kostir kastara:

  • Bætir Wi-Fi samband á heimilum og skrifstofum

  • Auðveldur í uppsetningu

  • Veitir trausta þráðlausa tengingu í stærri rýmum

Uppsetning og tengingar:

  1. Tengdu kastara við rafmagn.

  2. Tengdu netsnúru frá ráternum í kastarann (mælt með).

  3. Ef þú tengir þráðlaust, tryggðu að kastarinn sé nálægt ráter og án hindrana.

  4. Bíddu í um það bil 2 mínútur þar til ljós á kastaranum logar stöðugt (hvítt ljós).

Hvað þarf ég marga kastara?

Miðað er við eftirfarandi:

  • 70–119 m² → 0–1 kastari

  • 120–190 m² → 1–2 kastarar

  • 191–230 m² → 2–3 kastarar

  • 231–290 m² → 3–4 kastarar

Viðbótarupplýsingar:

Nánari leiðbeiningar með myndum er að finna í greininni „Hvernig tengi ég kastarann?“.

Var þessi grein gagnleg?
11 af 16 fannst þessi grein gagnleg