Greinar um þetta efni

Stilla data roaming, APN og tíðnir á 5G ráter

Í þessari grein förum við yfir hvernig við kveikjum á Data Roaming, APN stillingum og tíðnir skoðaðar í Hnetu/4G/4.5G búnaði i gegnum nýja viðmótið. 
Ef ferðast er erlendis með Hnetu/4G ráter mælum við með því að þú kynnir þér þessa grein líka til þess að komast í samband við umheiminn, smelltu hér

Skref-fyrir-skref leiðbeiningar

Skref 1: Skráðu þig inn á ráterinn

  1. Tengstu við ráterinn þinn í gegnum Wi-Fi eða með netsnúru.

  2. Opnaðu vefsíðu með IP-tölu rátersins (venjulega 192.168.8.1 eða samkvæmt leiðbeiningum með tækinu).

  3. Skráðu þig inn með notendanafni og lykilorði.

Skref 2: Stilla APN

  1. Veldu Network settings eða Internet settings.

  2. Finndu APN stillingarnar og sláðu inn eftirfarandi upplýsingar:

    • APN: internet.nova.is

    • Username: Skildu eftir autt

    • Password: Skildu eftir autt

  3. Vistaðu stillingarnar.

Skref 3: Virkja data roaming

  1. Farðu í Roaming settings.

  2. Veldu Enable data roaming.

  3. Vistaðu breytingarnar.

 

Ítarlegri leiðbeiningar:

Til þess að komast inn á stillingarsíðu rátersins þarft þú að tengja helst spjald eða tölvu við Hnetuna/4G ráterinn með notendanafni og lykilorði (það er að finna á límmiða á búnaðinum). Því næst slærðu 192.168.1.1 inn í vafra. Þú þarft að skrá þig inná búnaðinn með notandanafni og lykilorði, 

Notendanafn:admin

Lykilorð: admin (ef þú ert að skrá þig inn í fyrsta skipti). 
Ef þú hefur breytt lykilorðinu skráir þú þig inn með því lykilorði.

Þetta er stillingarsíðan sem þú sérð þegar þú loggar þig inn:

5g1.png

Næst smellir þú á "Network Settings" í bláu stikunni og þar velur þú felligluggann Mobile Network, velur  þar Internet network og þá opnast valmöguleikarnir Mobile Data og Data roaming - þegar þú ert erlendis þarf að vera kveikt á bæði Mobile Data og Data Roaming

Hér þarf einnig að athuga hvort APN stillingar séu ekki örugglega réttar. Á öllum netþjónustum viljum við sjá APN stillingarnar internet.nova.isEf APN stillingar eru ekki réttar getur þú valið plúsinn í hægra horninu frá APN List, skýrt það Nova net/internet og sett inn internet.nova.is.

Sjá meðfylgjandi mynd:

Capture1.PNG

Þar sem búið er að kveikja á Data roaming og APN stillingar eru nú réttar er ekkert því til fyrirstöðu að kíkja hvort það sé ekki örugglega kveikt á báðum nettíðnum.

Næsti flipi er "Wi-Fi Settings" í bláu stikunni, velja Wi-FI Basic Settings til vinstri og þar getur þú kveikt og slökkt á 2,4Ghz eða 5Ghz(ac) þráðlausa netinu.

Sjá meðfylgjandi mynd:

5g3.png

Gott er að endurræsa búnaðinn og reyna núna að tengjast.

Átt þú ennþá í vandræðum með að tengjast? 
Tækin tengd inn á routerinn með notendanafni og lykilorði og búið að endurræsa öll tæki? 
Heyrðu þá endilega í okkur á netspjallinu á nova.is og við græjum þetta saman.

Var þessi grein gagnleg?
1 af 4 fannst þessi grein gagnleg