iPhone síminn minn er netlaus - hvað get ég gert?
Ertu á Íslandi eða erlendis? Ef þú ert erlendis máttu færa þig yfir á þessa grein hér
Ef þú ert á Íslandi en getur ekki tengt þig við 4G/5G byrjum við á því að fara yfir eftirfarandi:
Er kveikt á Mobile Data í símanum?
Er gagnamagn á númerinu?
Hvað er valið í Voice & Data? Settings - Mobile Data - Mobile Data Options - Voice & Data - hér á að vera valin sú tíðni sem þú vilt að síminn geti tengst, best er að velja hæstu tíðni sem er í boði.
Er Profile í símanum? Ef svo er og þú kannast ekki við prófælinn þá þarf að eyða honum úr símanum. Settings - General - á milli VPN og Legal & Regulatory.
Ert þú með VPN/DNS uppsett í símanum eða tengdur við ráter sem er með VPN/DNS?
Er síminn með nýjustu hugbúnaðaruppfærslu?
Ef netið er það eina sem ekki virkar og símtöl og SMS virka eðlilega má prófa að endurstilla netstillingar/Reset Network Settings Sjá hér.
Er vandamálið bundið við staðsetningu eða gerist þetta útum allt?
Ef vandamálið er bundið við staðsetningu máttu endilega heyra í okkur á netspjallinu á nova.is, með upplýsingum um nákvæma staðsetningu - fullt heimilisfang, íbúðarnúmer og póstnúmer. Ef þú ert úti á landi (sumarbústaðarland / landsvæði sem er erfitt að finna) þarft þú að útvega okkur hnit/nákvæma staðsetningu svo við getum kafað í þetta með þér og skoðað hvað er að gerast, sjá hér.
Ef vandamálið er ekki bundið við staðsetningu, búið að fara yfir allt hér að ofan en ekkert leysir vandamálið má skoða það að senda símann í bilanagreiningu.