Á eero tækinu er LED ljós sem sýnir stöðu tækisins. Þegar allt virkar eðlilega er ljósið yfirleitt fast hvítt.
Ljósin geta hjálpað þér að sjá hvort eero sé tengt, í uppsetningu eða hvort það nái ekki netsambandi.
Algengustu ljósin á eero
Fast hvítt ljós
eero er online og virkar eðlilega.
Þetta þýðir yfirleitt að tækið sé tengt við internetið og netið sé í lagi.
Blátt ljós
eero er tilbúið í uppsetningu eða pairing.
Þetta sést oft þegar verið er að setja eero upp í fyrsta sinn eða bæta nýju eero tæki við í appinu.
Blikkandi blátt ljós
eero er í Bluetooth pairing og er að tengjast eero appinu.
Bíddu í smá stund og fylgdu leiðbeiningunum í appinu.
Rautt ljós
eero er offline eða nær ekki internet tengingu.
Þetta getur þýtt að vandamál sé með nettengingu, kapal, ljósleiðarabox eða gateway eero.
Hvað geri ég ef ljósið er rautt?
- Athugaðu hvort ljósleiðaraboxið eða modemið sé í gangi.
- Athugaðu hvort netsnúran sé föst í bæði eero og ljósleiðaraboxi / modem.
- Taktu eero úr sambandi við rafmagn í um 30 sekúndur og tengdu aftur.
- Bíddu í nokkrar mínútur á meðan eero reynir að tengjast aftur.
- Opnaðu eero appið og athugaðu hvort það sýni nánari upplýsingar um vandamálið.
Ef ljósið helst rautt eða netið kemur ekki inn aftur skaltu hafa samband við Nova.
Gott að vita
Ef eero er í uppsetningu getur blátt eða blikkandi blátt ljós verið eðlilegt.
Ef eero hefur verið í notkun og fer skyndilega á rautt ljós er líklegra að tækið nái ekki sambandi við internetið.